Bloggarar
Stuðningsmannafélög
19.10.2007 09:11:07 / addi

Afturelding vs. Haukar

Vildi bara henda inn smá færslu ef einhver skyldi vera að skoða þessa síðu.  Í kvöld tekur Afturelding á móti Haukum að Varmá og hefst leikurinn kl 20:00.  Ætlum við að reyna að fá eitthvað líf í stuðningsmenn liðsins og hittast í vallarhúsinu (að Varmá;) kl 18:30 þar sem við ætlum að fá okkur pizzur að borða og gera okkur glaðan dag.  Verðum við með tilboð á pizzunum en ég er ekki með það nákvæmlega á hreinu núna.  Um að gera að mæta í kvöld kl 18:30 og koma okkur í gírinn fyrir leikinn sem við ætlum að sjálfsögðu að vinna.

 

Áfram Afturelding

 

Addi 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 19:23:37 / ArniMagg

Leikur á morgun, föstudag

Síðasti leikur var eins og leikirnir á undan algjört rúst. Eina vandamálið við það var að í þetta skiptið var það á hinn veginn. Hrikaleg frammistaða gerði það að verkum að Afturelding verður að gera sér deildina að góðu þetta árið. Það verður að teljast áhyggjuefni ef að jafn mikill munur er á deildunum og úrslit vetrarins benda til.
Hvað sem ræfildóms síðasta leiks líður er komið að þeim næsta og í þetta skiptið eru mótherjarnir víkingur/fjölnir. Þeir voru okkur erfiður ljár í þúfu síðast á heimavelli og því enginn ástæða til þessa að slá slöku við. Ætlunin er að vinna alla leiki deildarinnar og standa uppi sem sigurvegarar, ekki satt?
Við félagar reynum eftir bestu getu að mæta með fjörið á föstudaginn og vonumst að sjálfsögðu eftir sem flestum við okkar hlið. Fyrir áhugasama er þetta enn einn heimaleikurinn og fer hann því fram að Varmá klukkan 1900

ArniMagg

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 14:01:01 / addi

SS Bikarinn

Afsakið biðina.

En nú er komið að SS Bikarnum og eigum við að etja kappi við Fylki í fyrstu umferð og fer leikurinn fram að Varmá í kvöld kl 19:00. 
Fylkir er með feiknasterkt lið og hefur byrjað tímabilið vel í úrvalsdeildinni og hafa unnið tvo leiki og tapað einum (sigur á ÍR og Val og tap gegn HK).  Liðin mættust á undirbúningstímabilinu og þar vann Afturelding nokkuð örugglega og hef ég fulla trú á strákunum að leggja Fylki aftur. Liðið verður að fá klassa stuðning í kvöld svo ég hvet þig og þína til að mæta á völlinn og styðja þitt lið til sigurs.

Áfram Afturelding.

addi

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 22:12:29 / addi

Haukar Bé... Nammi Nammi Namm

Já... það er nú ekki hægt að segja mikið um þennan leik nema hvað að við rústuðum honum. Í fyrri hálfleik var þó smá spenna í þessu og voru gestirnir yfir á kafla. Í hálfleik tók Bjarki liðið í gegn og eftir það var þetta leikur kattarins að músinni þar sem við skoruðum 7 mörk á móti engu í byrjun seinni hálfleiks og staðan var orðin 19-9.  Eftir það var sigurinn aldrei í hættu og leyfði Bjarki mörgum að spreyta sig í leiknum.  Þó sigurinn hafi verið stór var liðið bara að spila af hálfum hug og getur gert mun betur.  Var ég mjög sáttur að liðið spilaði af yfirvegun megnið af leiknum þó það væri 5-10 mörkum yfir og er það styrkleika merki.  Leikurinn endaði með sannfærandi 14 marka sigri (29-15) og var það mikið Dabba að þakka að gestirnir skoruðu ekki fleiri mörk því hann varði 25bolta í leiknum sem er tussu gott.

Þrátt fyrir stórsigur myndaðist sjaldan stemning á leiknum og má það kannski rekja til óspennandi leiks.  Vonandi að það gengur betur næst að mynda stemmningu hjá  áhorfendum, en á síðustu leikjum hefur margt verið um manninn í húsinu.

addi

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 22:35:39 / addi

Afturelding vs. Haukar 2

Vildi bara minna ykkur á leikinn á morgun sem hefst stundvíslega kl 19:00 á morgun (föstudaginn 6.okt 2006).  Leikið verður á móti Haukum 2 og skora ég á alla að mæta rauðklædd og með stemningsskapið með sér.  Eftir leikinn held ég að liðið ásamt stuðningsmönnum ætli að hittast á Draumakaffi þar sem tilboð verður á mat og drykk. 

Sjáumst á morgun...

 Áfram Afturelding

addi

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 20:59:39 / addi

Afturelding - FH

Rétt í þessu var að klárast leikur Aftureldingar og Fimleikafélags Hafnafjarðar þar sem okkar menn tóku FH-inga í kennslustund í bolta fræðum.  Í fyrri hálfleik var jafnræði með liðinum sem skiptust á að leiða leikinn.  Lið FH vantaði allan frumleika í sóknarleikinn og var það bara vegna þess hve varnarleikurinn var slakur og markvarslan arfaslök að þeir voru inni í leiknum í fyrri hálfleik.  Bjarki þjálfari hefur svo lesið ærlega yfir strákunum í hálfleik því næstu 30mín var leikurinn okkar.  Liðin skiptast á að skora 2-3 mörk en svo skellir vörnin í lás og þá kemur markvarslan. Á þessum kafla skora FH-ingar ekki eitt mark á meðan við skorum hvert markið á fætur öðru og komumst í 21-14 og eftir það sáu gestir okkar ekki til sólar.  Þeir voru hreinlega teknir í bakaríið á öllum stöðum vallarins.  Skoruðum við mörk úr öllum stöðum og var engan veikan punkt að finna í vörn né sókn í seinni hálfleik.  Þetta var vonandi bara nasaþefur af því sem koma skal í vetur og veit að liðiðinu mun bara fara fram. 
Gaman var að sjá hve margir voru mættir á völlinn til að styðja sitt lið og myndaðist gríðarlega góð stemning síðustu 20 mínútur og nú er bara að halda áfram og gera enn betur á næstu leikjum.

Hér má svo sjá hvenær næstu leikir eru:

Afturelding - Haukar 2 // Föstudaginn 6.okt kl 19:00 að Varmá
Afturelding - Höttur // Laugardaginn 14.okt kl 14:00 að Varmá
Afturelding - Vík/Fjölnir // Föstudaginnn 27.okt kl 19:00 að Varmá

addi



» 5 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 03:59:56 / ArniMagg

Síðasti Valsinn

Nú á laugardaginn er síðasti leikur tímabilsins að varmá klukkan 16:15 (með fyrirvara um villur ath. tímasetningu á færslu). Ekki hefur farið eins og best verður á kosið þessa leiktíðina þó svo að við höfum átt margar góðar stundir. Nú er bara að sýna liðinu að við erum ekki dauðir úr öllum æðum og styðja þá í þessum leik. Rétt eins og við vonum að stuðningurinn verði til staðar á næstu leiktíð Þó að leikurinn skipti ekki máli fyrir liðin(gæti verið að Stjarnan eigi enn möguleika á deildarbikardæminu en ég efa það) er þarna spilað upp á stoltið og ekki bætir úr skák að nokkrir af okkar bestu leikmönnum eru sterklega orðaðir við Stjörnuna. Þess vegna verðum við að sýna mátt okkar og megin í þessum leik til þess að allir sjái að í Mosfellsbænum er gott að vera.(man hvað þetta er væmið).
ArniMagg sendir baráttu kveðjur til allra stuðningsmanna Aftureldingar og vonast til þess að sjá þá á laugardaginn.



» 1 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 19:17:37 / addi

UMFA VS. KA

Jóhó kæru lesendur..
Mikilvægasti leikur ársins fer fram á morgun, laugardag, kl 16:15.  Þá etja kappi Afturelding og KA í íþróttarhúsinu að Varmá.  Eins og stað er í dag er Afturelding í 10 sæti með 21stig og KA og FH erum með 22stig í 8og9 sæti.  Svo þessi leikur er gríðarlega mikilvægur því ef við vinnum þá komumst við upp fyrir KA og sæti í fyrstu deild að ári gæti orðið að veruleika.  Ættu allir heilvita menn að skella sér á leikinn og styðja sitt lið til dáða með öllum sínum kröfum. 
Ætla stuðningsmenn Aftureldingar að hittast á Draumakaffi kl 15:00 og fá sér ljúfengar pítsur og gos/öl til að skola henni niður. 
Ég fékk hellvíti góðann prís á pizzum og drykkjarföngum, eða 1000kr fyrir 16" með
2 álegstegundum, svo er stór á krana á 500kr og stórt gos glas á 200kr.  Svo um að gera að mæta á Draumakaffi og fæ sér næringu fyrir leikinn.
Hvet ég alla til að mæta á leikinn í rauðum bol þar sem allir þeir fá glaðning frá Nóa Síríus.  Að lokum er bara um að gera að mæta á völlinn tímanlega og fá mömmu/pabba/afa/ömmu/frænda/frænku/bróður/systur og alla hina með sér og sjá til þess að liðið fái þann stuðning sem það þarf til að klára þennan leik.

Með baráttukveðju, Addi


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 12:51:50 / ArniMagg

Að duga eða drepast

Ég ætlaði að halda hér reiðilestur yfir öllum um leikinn í digranesi frá því um síðustu helgi. Ég hugsa samt að það þjóni ekki neinum tilgangi að ausa reiði minni yfir strákana þar sem að þeir vita líklegast upp á sig skömmina. Það versta við þetta er að eftir nokkur óheppnistöp virðist mórallinn ekki vera upp á marga fiska og sóknarleikurinn er vægast sagt hugmyndasnauður. Þegar falldraugurinn vofir yfir hafa farið af stað sögusagnir um að hin og þessi lið ætli að krækja í okkar bestu menn. Ég hef bara eitt að segja við þá: EKKI FARA!. Júdas fékk kannski þrjátíu silfurpeninga fyrir að svíkja Jesú en hann sá feitt eftir því. Og ef svo leiðinlega vill til að þið farið ekki fara í Stjörnuna. Svo ég haldi áfram að vitna í biblíuna þá byggði heimski maðurinn húsið sitt á sandi. Líkt og peningarnir í stjörnunni hafa byggt upp lið í kringum fégráðuga útlendinga sem helst má lýsa sem málaliðum á grunni sem að engan vegin heldur þessu uppi. Annað dæmi um hversu lágt mórallinn hefur sokkið er að heimasíða sem að meistarafokkurinn heldur uppi hefur ekki verið uppfærð í háaherrans tíð og virðist öllum vera sama.
Leikur á laugardag gegn ÍBV að Varmá klukkan 14:00. Þetta er skyldusigur fyrir okkar menn ef að þeir hafa áhuga á því að halda sér í efstu deild. Við ætlum að mæta dýrvitlausir þangað og hvetja okkar menn fram í rauðan dauðan (maður tekur bara svona til orða). Við mætum alla vega í rauðu þannig að það má vel vera. Ef ég man rétt unnum við þá í fyrri umferðinni á útivelli og er því mikilvægt að láta sverfa til stáls á morgun. Þá vil ég líka biðja þá fáu sem að lesa þetta afsökunar á stuttum fyrirvara fyrir leikinn.

ArniMagg styður Aftureldingu

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 11:54:37 / ArniMagg

HK gegn Aftureldingu


Á morgun laugardaginn 18. mars er leikur hjá Aftureldingu gegn Hk. Þarna er um að ræða mjög svo mikilvægan leik fyrir bæði liðið og stuðningsmenn þess. Liðinu hefur ekki gengið allt of vel í síðustu leikjum en þó verið óheppnir svo ekki sé lítið sagt. Fall draugurinn vofir yfir öllu og með hverjum degi sem líður heyrast sögusagnir um okkar bestu leikmenn. Plís ekki fara! Það væri leiðinlegt ef að botninn myndi detta úr þessum mjög svo efnilega hópi sem Afturelding svo sannarlega er. Þess vegna treysti ég mínum mönnum til að koma dýrvitlausir og einbeittir í leikinn á morgun. Til þess að við höldum okkur uppi þurfum við að vinna leiki við liðin sem að við erum að berjast við um sætin. það er bara svo einfalt. Svo má ekki gleyma því að góðvinur allra í Mosfellsbæ hann Elías Már er að spila gegn okkur og það ætti að vera nóg til að fá fólk á völlin. (no pun intended)

Önnur viðureign sem fram fer á morgun er viðureign stuðningsnýliðiðanna í hænunum gegn Afa allra stuðningsliða í handbolta á Íslandi nefnilega Binnamönnum. Þeir voru að styðja þegar enginn var að styðja og það þótti hvorki kúl né rad að styðja. Þeir eru gamlir í hettunni og hoknir af reynslu en við líkt og liðið okkar ungir efnilegir og fullir eldmóðs.

Að lokum legg legg til að sem flestir leggi leið sína á þennan sannkallaða fjögurra stiga leik í Digranesi klukkan 16:15 á laugardaginn 18. mars ekki þann 17. mars ( sorry ég varp að hafa þetta með) og styðji okkar lið til sigurs.

ÁrniMagg sendir baráttu kveðjur til allra Mosfellinga og lofar að kjósa alla þá sem eru að bjóða sig fram í kosningunum í vor ef að þeir mæta á leikinn.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 14:47:17 / addi

Nú skal gengið til leiks

Daginn..
Nú er að duga eða drepast fyrir okkar menn, þar sem þeir eru komnir í neðri hluta deildarinnar og ekki mikið eftir að leiktíðinni, þá verða þeir að vinna næsta leik sem er gegn Val.  Hefst leikurinn stundvíslega kl 16:15 að Varmá.  Ef einhverntímann hefur liðið þurft stuðning þá er það núna því deildin er jöfn og fá stig sem skilja liðin að.  Drengirnir munu koma snældu vitlausir til leiks og sýna alþjóð að þeir geta klárað leikina, því oft hefur það gerst í vetur og síðustu 20mín hefur allt farið til fjandans hjá liðinu og það skitið á sig eftir góðan leik í byrjun.  Fyrri leikurinn sem fór fram í Laugardalshöll endaði með eins marks mun fyrir valsmönnum, en þeir voru yfir með 6 mörkum í byrjun seinni hálfleiks en við náðum að minnka muninn.  Með góðum leik þá er þetta Vals lið ekki óvinnandi þó það sé í topp baráttunni. 
Svo kæri lesandi þá er ekkert annað að gera fyrir þig en að taka upp lúðurinn og bjölluna og mæta til leiks kl 16 á morgun(laugardag) og sjá til þess að strákarni haldi fullri einbeitingu og klári þennan leik. 

Áfram Afturelding...

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 00:13:14 / ArniMagg

Afturelding/Fylkir

Afturelding tekur á móti Fylkismönnum á morgun miðvikudag. Þessi leikur er mjög mikilvægur eins og flestir leikjanna því Afturelding er þessa dagana í blóðugri baráttum um eitt af fyrstu átta sætunum. Síðast þegar þessi lið mættust skildu þau jöfn og má því búast við baráttuleik. Okkur menn munu væntanlega (vonandi eins gott eða ég verð reiður) koma eins og froðufellandi hundar inn í þennan leik og berjast til síðasta blóðdropa. Ekki veitir af því að Fylkir hefur náð góðum úrslitum undanfarið. Addi og Óli eru því miður fullir í Austurríki að þykjast vera á snjóbretti þannig að þeirra stuðnings verður saknað. Það þíðir að allir sem vetlingi geta valdið ættu að drífa sig niður í íþróttahús á morgun klukkan 7, leikurinn byrjar reyndar korter yfir en það er kúl að mæta snemma og það er líka geggjað að mæta í rauðum bol.  Nú er því um að gera fyrir alla Mosfellinga og mæður þeirra að drífa sig á völlin og styðja sitt lið.
Í öðrum handboltafréttum má kannski nefna að Stjarnan varð bikarmeistari á laugardag en þar sem að við vorum ekki að keppa er mér drullutussusama.

Árni Magg vill sjá þig á leiknum á morgun.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 12:21:53 / addi

Næsti leikur

Jæja þá er komið af því góðir hálsar.... næsti leikur í deildinni er á morgun og er það gegn Fram, sem eru þessa stundina í efsta sæti deildarinnar. Þrátt fyrir það þá verður þeim engin miskun sýnd og ætla strákarnir að skella Golíat, því oft veltur lítil þúfa þungu hlassi. Leikurinn byrjar á kl 19:15 og um að gera að mæta á réttum tíma í þetta skiptið því stuðningurinn verður að vera á fullu frá fyrstu sek. leiksins. Bolirnir góðu verða til sölu á leiknum á skitinn 500kall og um að gera kaupa sér einn ef þú átt ekki einn nú þegar. Svo bara að koma með gömlu Machintos dollurnar hennar ömmu til að lemja á eða eitthvað annað sem ykkur dettur í hug. En þetta verður ekki lengra í bili, sjáumst hás, kát og sveitt á miðvikudaginn.

Viðbót: Næsta föstudag er leikur á Akureyri gegn Þór. Við félagar höfum ákveðið að skella okkur þangað til að styðja við okkar lið. Þeir sem eru áhugasamir um að koma mega endilega tala við okkur í kvöld á leiknum eða síðar. Það má þó ekki vera of seint því að við þurfum að hafa þessi ferðamál á hreinu fyrr frekar en seinna. Það væri samt gaman að geta myndað góða stemmningu og koma heimaliðinu á óvart. Ég verð svo bara að vona að það lesi þetta einhver og svo auðvitað að fólk sé til í að skella sér norður. Sjáumst í kvöld og Áfram Afturelding!

kv. addi

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 22:14:30 / addi

Road Tripp á Selfoss

Ég held að ég hafi aldrei upplifa aðra eins geðveiki og ég upplifði í kvöld. Ákváðum ég, Árni og Óli að skella okkur á Selfoss í kvöld til að sjá Aftureldingu etja kappi við Selfyssinga. Náðum við að fá Yngva með okkur og var þá bílinn fullur því Óla bíll tekur ekki fleiri en 4 með góðu móti. Mættum við aðeins of seinir eða 5 mín og var þá staðan 2-4 fyrir okkar menn. Svo byrjuðum við að því sem við erum bestir, að hvetja okkar lið og æsa upp múginn (sem heppnaðist rosalega vel í kvöld). Ólafur þjálfari var dulítið tens á fyrstu mínútunum en þegar hann sá að við vorum komnir þá róaðist hann talsvert. Ekki sakaði að hafa Reyni Inga, Jóa og Magga E. bróður með okkur í stúkunni. Talsvert af fólki var komið í höllina og þegar við byrjuðum þá tóku Selfyssingar við sér og létu í sér heyra, þó aðalega litlar fimleikastelpur sem áttu að sýna listir sínar í hléi. Allt liðið var að spila vel í fyrri hálfleik, spiluðum hraðann og skemmtilegann bolta. Haukur að leysa vel H-skyttuna og vorum við yfir 12-15 í hléi. Í seinni hálfleik byrjaði gamanið fyrir okkur. Í fyrstu komu tvær fimleikastelpur og fóru að kvetja Selfoss beint bak við okkur og fannst þeim það svo gaman að þær fengu 30 vinkonur sínar til að hjálpa sér og áður en við vissum voru þær búnar að umkringja okkur. Beittu þær alskonar brögðum til að knésetja okkur, t.d
#Í stað þess að öskra "Selfoss" þá öskruðu þær "Þegiði"
#Öskruðu Afturgelding og fannst það mjög sniðugt
#Köstuðu nammi í Árna og var ætlunin að meiða hann
#Uppnefndu Aftureldingu með að öskra "Afturendinn í klofinu á mér"
#Stóðu fyrir okkur svo við sáum ekki annan helminginn af húsinu og neituðu að setjast niður.
Héldum við þó okkar striki og kláruðum dæmið til enda. Komumst við í vænlega stöðu 16-22 þegar tæpar 15mín voru eftir en þá komu 4 mörk Selfyssingar sem var ekki nægilega góður kafli en við héldum áfram og sigruðum með glæsibrag 20-28 og áttu allir góðan dag. Dómararnir voru samkvæmir sjálfum sér og létu leikinn fljóta ágætlega, voru ekkert að gefa 2mín á hvað sem er sem leiddi til þess að hvort lið var útaf 4-6mín í leiknum sem er mjög lítið. En góður leikur og geggjuð ferð hjá hænunum.

kv. addi
 

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 15:37:32 / ArniMagg

Mættir eftir langt hlé

Ég var spurður einhvertíma í janúar hvort þetta apparat okkar væri búið. Svar mitt var á þá leið að það væru engin leikir og ekkert í gangi og þess vegna kæmi ekkert hingað inn. Nú hins vegar þegar leikirnir eru að byrja erum við riðgaðir og gamlir (aðallega riðgaðir samt) og þess vegna erum við of seinir að gera hluti sem að við ættum að vera löngu búnir að gera.
Þannig er mál með vexti að það er leikur í kvöld gegn Selfossi þar eystra. Mér er það nokkuð ljóst að það munu ekki margir sjá þessa tilkynningu en því ætla ég að reyna að safna saman hópi valikunnra bullna til að ferðast með okkur austur fyrir fjall. Um er að ræða mjög mikilvægan leik sem að Afturelding er staðráðin í að vinna. Gengið hefur verið upp og ofan en oft hafa liðin í neðri hlutanum gert okkur skráveifu. Þetta hefur gerst þegar okkar menn hafa ekki náð nægilegri forystu og tapað svo í lokin. Svoleiðis uppákomur munu vonandi deyja út á þessu ári og ætla ég að vona að strákarnir okkar hafi nú lært að sparka í liggjandi menn (ekki bókstaflega samt).
Breytt: Tók út smá dót því að það átti ekkert heima hér lengur :)

Arni Magg

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2